Gervigreindarpúlsinn frá Rue de Net

PúlsinnEitt öruggt skref í einu.

Það er ekki nóg að taka upp AI-tól eins og Copilot Cowork. Púlsinn er aðferðin okkar til að hefja gervigreindarvegferðina skipulega: við hlustum á starfsfólkið ykkar, finnum hvar virðið er mest og mælum árangurinn bæði fyrir og eftir.

Þetta byrjar allt á fyrsta spjallinu.

Bókaðu fyrsta spjallið ↗Sjáðu skrefin ↓
Tveir ráðgjafar ræða saman við borð á skrifstofu Rue de Net
Fyrsta spjalliðStaðan, möguleikarnir og fyrsta skrefið
Markviss vegferðSex örugg skref í hring

Af hverju Púlsinn

Ekki bara nýtt AI-tól.

Það er auðvelt að kaupa gervigreind en erfiðara að láta hana skila virði. Ef við tökum bara eina og eina hugmynd verður vegferðin ómarkviss. Púlsinn heldur utan um hana, svo þið farið skipulega fram á við, eitt öruggt skref í einu.

1

Gervigreindarstefna

Hvert viljið þið fara með gervigreind og hvers vegna? Stefnan tengir gervigreindina við markmiðin ykkar.

2

Hvar er virðið mest?

Við finnum hvar gervigreindin skilar mestu í ykkar rekstri, og byrjum þar.

3

Kerfi, gögn og heimildir

Við skoðum kerfin sem þið notið, gögnin og heimildirnar: hvað er til, hvar það er og hver má sjá hvað.

4

Mælum fyrir og eftir

Við mælum stöðuna bæði fyrir og eftir innleiðingu, svo þið sjáið svart á hvítu hverju þetta skilar.

Sex örugg skref

Þetta byrjar allt á fyrsta spjallinu, þar sem við ræðum stöðuna hjá ykkur, möguleikana og fyrsta skrefið. Svo tekur hringurinn við.

01

Stöðumat

Starfsfólkið svarar stuttri, nafnlausri könnun, um 10 mínútur hvert. Fólkið sem notar kerfin á hverjum degi veit best hvar tíminn fer.

02

Forgangsröðun

Á vinnustofu með stjórnendum förum við yfir niðurstöðurnar og veljum þau verkefni sem skila mestu.

03

Öryggi og gögn

Við pössum upp á öryggið og gögnin: hvaða gögn þarf, hvar þau eru og hver má sjá hvað.

04

Setja mælistiku

Áður en við smíðum setjum við markmið og ákveðum hvernig árangurinn verður mældur.

05

Innleiða AI

Við innleiðum gervigreindina með ykkar fólki og prófum lausnirnar með notendum jafnóðum.

06

Mæla virðið

Við mælum virðið, svo þið sjáið hverju þetta skilar. Svo byrjar hringurinn aftur með næsta verkefni.

Nýr púls reglulega sýnir hvort nýtingin batnar og hvar næstu tækifæri liggja, áður en vandinn vex.

1 · Stöðumat

Starfsfólkið ykkar veit svörin.

Hver starfsmaður svarar stuttum spurningalista um stefnu, hæfni, verkin, gögn og framkvæmd. Hver fullyrðing fær tvær einkunnir frá 1 til 10: staðan í dag og hvar við ættum að vera.

Bilið á milli er tækifærið. Svo spyrjum við af hverju, og fólkið svarar á eigin orðum. Þar kemur fram nákvæmlega hvað stendur í vegi.

Dæmi um fullyrðinguSkýringarmynd
Ég hef nægan tíma til að ljúka verkefnum mínum vel.
Í dag4
Ætti að vera9
Bil = 5 Af hverju? „Við eyðum of miklum tíma í handvirkar endurpantanir.“

Okkar loforð

Fólkið ræðurLausnirnar undirbúa, stinga upp á og yfirfara. Manneskja samþykkir allt sem snertir viðskiptavini, birgja, peninga eða bókanir.
Heimildirnar gildaLausnirnar virða heimildir notenda í Business Central. Enginn sér meira en hann má sjá í dag.
NafnleyndSvörin í stöðumatinu eru nafnlaus og tekin saman eftir deildum, svo enginn þekkist.
Engin gervigreind bara til að hafa gervigreindEf staðlað Business Central, einföld sjálfvirkni eða breyttur verkferill leysir málið betur, þá mælum við með því.
Mælt, ekki lofaðMarkmiðin eru sett áður en við smíðum, og niðurstöðunum er skilað heiðarlega, líka því sem gekk ekki.
Við þekkjum ykkurVið höfum þjónustað Business Central og Navision á Íslandi frá 2006. Við skiljum tæknina, reksturinn og fólkið.

Hafðu samband

Þetta byrjar allt á fyrsta spjallinu.

Við ræðum stöðuna hjá ykkur, hverjir möguleikarnir eru og hvernig við förum af stað. Sendið okkur póst og við finnum tíma. Tökum fyrsta skrefið á þessari vegferð saman.

Bókaðu fyrsta spjallið ↗

Netfang
ruedenet@ruedenet.is

Svona förum við af stað
  1. Í dagVið veljum dagsetningu, bakhjarl og hverjir taka þátt.
  2. Eftir eina vikuStöðumatinu er lokið og við vinnum úr svörunum.
  3. Eftir tvær vikurVið kynnum niðurstöðurnar og þið ákveðið næsta skref.
HeimilisfangRue de Net ehf., Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík