Stöðumat
Starfsfólkið svarar stuttri, nafnlausri könnun, um 10 mínútur hvert. Fólkið sem notar kerfin á hverjum degi veit best hvar tíminn fer.
Gervigreindarpúlsinn frá Rue de Net
Það er ekki nóg að taka upp AI-tól eins og Copilot Cowork. Púlsinn er aðferðin okkar til að hefja gervigreindarvegferðina skipulega: við hlustum á starfsfólkið ykkar, finnum hvar virðið er mest og mælum árangurinn bæði fyrir og eftir.
Þetta byrjar allt á fyrsta spjallinu.
Bókaðu fyrsta spjallið ↗Sjáðu skrefin ↓
Af hverju Púlsinn
Það er auðvelt að kaupa gervigreind en erfiðara að láta hana skila virði. Ef við tökum bara eina og eina hugmynd verður vegferðin ómarkviss. Púlsinn heldur utan um hana, svo þið farið skipulega fram á við, eitt öruggt skref í einu.
Hvert viljið þið fara með gervigreind og hvers vegna? Stefnan tengir gervigreindina við markmiðin ykkar.
Við finnum hvar gervigreindin skilar mestu í ykkar rekstri, og byrjum þar.
Við skoðum kerfin sem þið notið, gögnin og heimildirnar: hvað er til, hvar það er og hver má sjá hvað.
Við mælum stöðuna bæði fyrir og eftir innleiðingu, svo þið sjáið svart á hvítu hverju þetta skilar.
Þetta byrjar allt á fyrsta spjallinu, þar sem við ræðum stöðuna hjá ykkur, möguleikana og fyrsta skrefið. Svo tekur hringurinn við.
Starfsfólkið svarar stuttri, nafnlausri könnun, um 10 mínútur hvert. Fólkið sem notar kerfin á hverjum degi veit best hvar tíminn fer.
Á vinnustofu með stjórnendum förum við yfir niðurstöðurnar og veljum þau verkefni sem skila mestu.
Við pössum upp á öryggið og gögnin: hvaða gögn þarf, hvar þau eru og hver má sjá hvað.
Áður en við smíðum setjum við markmið og ákveðum hvernig árangurinn verður mældur.
Við innleiðum gervigreindina með ykkar fólki og prófum lausnirnar með notendum jafnóðum.
Við mælum virðið, svo þið sjáið hverju þetta skilar. Svo byrjar hringurinn aftur með næsta verkefni.
Nýr púls reglulega sýnir hvort nýtingin batnar og hvar næstu tækifæri liggja, áður en vandinn vex.
1 · Stöðumat
Hver starfsmaður svarar stuttum spurningalista um stefnu, hæfni, verkin, gögn og framkvæmd. Hver fullyrðing fær tvær einkunnir frá 1 til 10: staðan í dag og hvar við ættum að vera.
Bilið á milli er tækifærið. Svo spyrjum við af hverju, og fólkið svarar á eigin orðum. Þar kemur fram nákvæmlega hvað stendur í vegi.
Ég hef nægan tíma til að ljúka verkefnum mínum vel.Bil = 5 Af hverju? „Við eyðum of miklum tíma í handvirkar endurpantanir.“
Lítil fyrirhöfn fyrir ykkur
Þið veljið hvaða deildir taka þátt og hve margir eru í hverri deild. Engin nöfn eða netföng. Við sjáum um rest.
Svörin eru nafnlaus og tekin saman eftir deildum, svo enginn þekkist.
Afurðin
Þið fáið skýrslu og kynningu fyrir stjórnendur, bæði fyrir fyrirtækið í heild og hverja deild. Hver stjórnandi fær sína eigin niðurstöðu til að styðja sitt fólk.
Ekki er allt gervigreind. Stundum er besta lausnin þjálfun eða einfaldari verkferill. Ef svo er segjum við ykkur það.
Hafðu samband
Við ræðum stöðuna hjá ykkur, hverjir möguleikarnir eru og hvernig við förum af stað. Sendið okkur póst og við finnum tíma. Tökum fyrsta skrefið á þessari vegferð saman.
Bókaðu fyrsta spjallið ↗Netfang
ruedenet@ruedenet.is